Fallegur mynstraður skyrtukjóll frá JDY (Jacqueline de Yong) í stærð M. Kjóllinn er með smágerðu abstrakt mynstri í karamellubrúnum og dökkbláum tónum, klassískum skyrtukraga, tölum að framan og löngum ermum með stroffi. Belti í mitti sem dregur fram fallegt snið og laust, vítt pils með pífu að neðan. Léttur og klæðilegur kjóll sem hentar vel bæði hversdags og við fínni tilefni.