Glæsilegur svartur síðkjóll frá Brá verslun í stærð S. Kjóllinn er með fíngerðum glitrandi röndum, löngum ermum og rúnnuðu hálsmáli. Fallegt, laust snið með síðum klaufum á hliðum sem gefa kjólnum létt og glæsilegt fall. Glimmeráferðin gerir hann einstaklega flottan fyrir veislur, árshátíðir, jólaboð og önnur hátíðleg tilefni.