Falleg ljósbleik, síð skyrta frá COS í stærð M. Skyrtan er í afslöppuðu sniði með klassískum kraga, tölum að framan, síðum ermum og stórum brjóstvasa. Létt og mjúk áferð með náttúrulega krumpuðu yfirbragði. Tímalaus flík sem passar vel við gallabuxur, leggings eða opin yfir topp.