Fallegur dökkbleikur Newbie flauelskjóll í stærð 104. Kjóllinn er úr mjúku flauelsefni með síðum ermum, fallegum pífum yfir axlir og niður að mitti. Rykkt pils gefur kjólnum sætt og klassískt snið. Dásamlegur sparikjóll sem hentar vel fyrir jól, afmæli og önnur hátíðleg tilefni.