Brúnn Lindex skyrtukjóll í stærð XS/S úr 100% hör. Síður og hnepptur kjóll með kraga, stuttum uppbrettum ermum, rúnnuðum kanti og klaufum á hliðum. Létt og náttúrulegt hör efni með afslöppuðu sniði, flottur einn og sér eða opinn yfir bol og buxur. Tímalaus skyrtukjóll sem hentar sérstaklega vel fyrir vor og sumar. Gott notað ástand.