Fallegur Molo kjóll fyrir börn í stærð 86 með áberandi og skemmtilegu sveppamynstri í fjólubláum, gráum og jarðlitum. Langermakjóll með víðu pilsi og smellum við háls sem auðvelda að klæða barnið í. Mjúkur og þægilegur kjóll sem hentar vel hversdags, í leikskólann eða í fínni tilefni.